<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31


Hrafnkell Brimar Hallmundsson

Íris Dögg Hauksdóttir

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Saturday, October 28, 2006
Er hætt að blogga.....

... hérna á þessari síðu. Ég er s.s að vinna í að búa til nýja heimasíðu. Endilega kíkið á hana en hún er samt ennþá í vinnslu. Slóðin er http://truflun.net/iris

Posted at 28.10.06 by hrafnkell-iris
Make a comment  

Thursday, October 19, 2006
Hæ hæ

Veturinn er sko aldeilis farinn að gera vart við sig og því ekki seinna vænna en að draga fram vettlinga, húffur, ullarsokka og þykka trefla. Ég get sko alveg sagt ykkur það af bitri reynslu að þunnir jakkar yfir stuttermaboli eru ekki að meika það Þessa dagana.
Utan við kuldann er nú bara fínt að frétta af okkur hjúunum. Við erum farin að huga að fluttningum en við erum að flytja af stúdentagörðunum upp í Breiðholt, nánar tiltekið í seljahverfið og leggst það bara mjög vel í okkur. Auðvitað eru svo allir velkomnir í heimsókn þegar við verðum flutt og búin að koma okkur aðeins fyrir. Erum mikið að spá í að mála áður en við flytjum inn og gera þetta svoltið huggulegt.
Það er alltaf nóg að gera í vinnunni hjá mér og erum við búnar að vera á útkalli við að undirbúa fluttning, flytja og ganga frá. Við vorum farnar að smíða veggi og ganga í störf iðnaðarmanna í restina og var þetta bara heljarinnar fjör. Það tókst svo að lokum að smíða búð, tæma eina búð og setja aðra upp á tveimur dögum. Það var mikil vinna og alveg ótrúlegt að þetta skyldi takast. einn veggur var smíðaður og strax var kominn málari að mála vegginn og stuttu síðar fólk að setja upp hillur og nokkrum mínútum síðar voru söluvörur komnar í hillurnar. Við erum nú samt búin að vera pínu áttavillt í þessari nýju verslun og vitum ekki hvar neitt er en það kemur líklega mjög fljótt;) Í fyrradag fór ég á fyrirlestur hjá Clarins á vegum vinnunnar og fékk ásamt starfsfélögum smá fræðslu um nýju jólalínuna sem er rosalega flott og elegant. Einnig fengum við fræðslu um nýju kremlínuna og fengum svo flottar gjafir til að fara með heim og prófa:)
Í gærkveldi fór ég í veislu hjá Kanebo snyrtivörunum (einnig vegna vinnunnar) Þetta var allt rosalega flott. Höfðum fengið voða formlegt boðskort sem innihélt þær upplýsingar að þema kvöldsins væri rauður. Þegar við komum á staðinn beið okkar rauður dregill með friðarljósum og leiddi okkur inn. Þegar inn var komið fengum við rauðan fordrykk og gefins rauðan varalit sem við áttum að setja upp. Síðan var smá kynning á nýju Kanebo vörunum sem eru alveg geggjaðar;) Síðan var sest til borðs þar sem forréttur var reiddur fram, það var graflax og sósa, risarækjur, kjúklingaspjót, paté, brauð og hvítlaukssósa. Með þessu fengum við síðan rauðvín og hvítvín eftir því sem hver vildi. Aðalrétturinn kom síðan á borð og það var kjúklingapastaréttur með ostasósu og sveppum. Með því var borið fram hvítlauksbrauð og salat. Þjónarnir héldu áfram að hella rauðvíni og hvítvíni í glösin yfir aðalréttinum. Eftir þetta fengum við kaffi og konfekt og síðan koníak og baileys. Þegar þarna kom við sögu mætti Auddi Blöndal á svæðið og skemmti. Hann var mjög fyndinn og hef ég ekki séð sumar konurnar í vinnunni hlægja svona mikið, sumar áttu sko erfitt með sig;) Eftir að við hrisstum hláturstaugarnar var komin tími á að hrissta rassinn smá og skellt var upp diskóteki og nóg var af bjórnum. Þegar við fórum svo heim fengum við svo voða flotta gjöf frá þeim sem innihélt nýju línuna þeirra:) Þetta var alveg frábært kvöld og allt rosa flott. Vel skreytt húsnæðið með kertum, jólaseríum og rauðum rósum og held ég að allir hafi skemmt sér rosalega vel.
Ég er ennþá í átaki ásamt verðandi eiginmanni mínum. Þetta gengur bara rosalega vel hjá okkur og eiginlega alveg ótrúlegt að við séum búin að vera í átaki í 4 vikur. Finnst svo stutt síðan ég byrjaði en á þessum 4 vikum er ég búin að léttast um 5,5 kg og er sko aldeilis farin að finna fyrir því á fötunum mínum.
Síðasta laugardag vorum við Hrafnkell barnapíur. Lilja Kristinsdóttir (2 ára) var hjá okkur frá laugardagsmorni til sunnudagsmorguns og allt gekk rosalega vel enda er hún alltaf svo góð stelpa:)
Pétur Snær minnsti frændi minn fór svo í aðgerð í gær og gekk hún rosalega vel. Hann var fljótur að jafna sig og vonandi er þetta eyrnavesen búið hjá honum. Hann er bara 9 mánaða og hljóðhimnan hefur sprungið 7 sinnum í vinstra eyranu hans. Litla greyið fékk því rör í eyrun í gær. Pétur Snær er svo rosalega glaðvært barn að annað eins þekkist varla. Hann er alltaf brosandi eða hlægjandi og þrátt fyrir allt eyrnavesenið. Hann er voðalega duglegur, labbar meðfram öllu eða með sparkbílinn sinn á undan sér. Hann talar nokkur orð og er bara indislegastur. Ég tileinka honum þetta blogg því hann var svo duglegur í aðgerðinni sinni.

Posted at 19.10.06 by hrafnkell-iris
Comment (1)  

Thursday, October 05, 2006
Er komin tími á blogg?

Jæja það er víst margt búið að gerast síðan ég ritaði hér síðast. Ætla nú samt ekki að fara út í það allt enda myndi engin nenna að lesa það. Þetta blogg verður bara í pungtaformi svo ég komi einhverju að.
  • Fórum á Kárahnjúka og sáum þessa RISA stíflu sem á ekki heima þarna.
  • Eyddum heilum degi á Egilsstöðum í 30° hita og höfðum það gott. Grilluðum svo með bretunum sem voru að vinna með Hrafnkeli. Alltaf fyndið að grilla með bretum því þeim finnst við kaupa svo mikinn mat;)
  • Kíktum í heimsókn til Stebba, Hildu og dætra í Mývatnssveit. Hrafnkell og Stebbi héldu tónleika á pallinum í sólinni.
  • Ég fór og hitti Ingu, Jónu og Ólöfu á kaffihúsi á Akureyri. Voða gaman að rifja upp gamla tíma með þeim.
  • Fórum í mat til Önnu og Palla. Gaman að sjá þau og takk aftur fyrir okkur.
  • Ég fór á ball á menningarnótt með Rósu, Björgu og Sigrúnu. Voða gaman og MJÖG langt síðan ég hafði farið á ball.
  • Fórum til Kristínar og Trausta. Þangað komu líka Edda Linn, Hrönn, Úlla og Pési. Voða gaman að hitta þau og það er komið að okkur að halda svona. Hvenær eru þið laus og þú líka Lísa?
  • Fórum heila helgi norður og unnum í sumarbústaðnum okkar:) Hann er orðin fokheldur og lítur vel út:) Við heimsóttum samt engan þessa helgi vorum bara í Skíðadalnum svo við biðjumst afsökunar á því að hafa ekki komið til ykkar!
  • Auðun og Gerda komu í heimsókn um daginn. Alltaf gaman að fá gesti og langt síðan við höfðum séð þau.
  • Egill og Ellý gistu hérna hjá okkur um síðustu helgi og voru í mat á laugardagskvöldið. Við buðum líka Hákoni og gátum kvatt hann því hann er fluttur til Englands.
  • Við fórum í mótmælagöngu með ca 10.000 öðrum. Mótmæltum þessum fáranlegu stíflum og virkjunum.
  • Ég, Sigrún og Birna heimsóttum Eydísi og Jódísi Höllu. Hún er algjör dúlla og enn og aftur Eydís til hamingju með hana.
  • Erum búin að fara í 4. ára afmæli hjá Aroni Daða og 2. ára afmæli hjá Ástu Karen. Þau eru bara krúttleg systkinin:)
  • Hrafnkell tók að sér eitt föstudagskvöld að vera dyravörður á Óliver og sá þá alveg nýja hlið á fullu fólki;)
  • Á sunnudaginn síðasta komu svo frænkur, systur og mákona mín til mín og við byrjuðum að undirbúa jólaföndrið.
  • Annars erum við bara búin að vera að vinna og vinna eins og brjálæðingar. Ég er búin að vera í 2 vikur á dagvakt og 2 vikur á næturvakt til skiptis í langan tíma og er orðin dáltið þreytt á að vera endalaust að snúa sólahringnum við. Þegar ég er að koma heim á nóttunni af kvöldvakt er það á svipuðum tíma og ég vakna til að fara á morgunvakt.
  • Við erum búin að ákveða brúðkaupsdaginn og hann verður 14. júlí. 2007 og erum við að vinna í að panta prest og annað slíkt, sá sem við vildum fá var ekki laus.
  • Við erum byrjuð í átaki og nú á að taka af sér öll aukakílóin sem hafa safnast upp á skömmum tíma. Ég er búin að vera í tvær vikur í átaki og er búin að missa 3,3 kg en nóg er eftir.
  • Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra nema Það eru 80 dagar til jóla og auðvitað er ég byrjuð að telja niður:) Er líka komin aðeins á leið með að versla jólagjafirnar er meira að segja búin að versla á ófædda afasystrabarnið mitt. Ásta þú verður bara að eiga fyrir jól!
    Hafið það gott,
    love Íris

  • Posted at 5.10.06 by hrafnkell-iris
    Comments (4)  

    Monday, August 14, 2006
    Flakk um landið.

    Góðan og blessaðan daginn. Í dag berast fréttir af okkur frá austurlandinu en þar erum við einmitt stödd þessa stundina. Hrafnkell er að vinna og ég er inni á Skriðuklaustri að vinna í ritgerðinni minni (já eða blogga;) Við komum hingað keyrandi í nótt eftir skemmtilega helgi á Dalvík. Eins og flestir vita var Fiskidagurinn mikli haldin hátíðlegur á Dalvík í sjötta sinn. Talið er að um 35000 manns hafi mætt á svæðið og bragðað á ljúfengum mat. Bærinn var rosalega flottur og blöðrur, jólaljós og fánar settu mikinn svip á bæinn og eiga bæjarbúar heiður skilið eins og sjálfur forsetinn minntist á í ræðu sinn við þetta tilefni. Ég var mætt norður á miðvikudaginn og gerði nú mest lítið þann dag annað en að slappa af og njóta þess að vera komin í frí. Á fimmtudagsmorgninum var ég mætt snemma inn í sveit og byrjuð að vinna í sumarbústaðnum okkar. Ég var að bera timbur fram á kvöld í mígandi rigningu og náði mér meira að segja í smá kvef þennan dag. Á föstudaginn skrapp ég með Sillu systur í búðina og við versluðum inn þar á meðal jólaseríu á húsið hans pabba. (það eru ekki allar verslanir sem hafa rífandi sölu á jólaseríum í ágúst). Nóg var af fólkinu í húsinu eins og á flestum stöðum í bænum en 14 manns sváfu inni og 10 manns úti í garði í tjöldum og fellihýsi. Eftir hádegi á föstudeginum keyrði ég síðan austur á Skriðuklaustur og náði í Hrafnkelinn minn og svo var bara brunað strax aftur á Dalvík. Þetta kvöld var súpukvöldið mikla og heppnaðist það svakalega vel og allir ánægðir með hvernig til tókst. Ég heyrði nú af því að mörg hundruð manns hafi komið í súpur og kvittað í gestabækur víðsvegar um bæinn. Það voru partíi í öðru hverju húsi og allir velkomnir á hvaða pall sem var. Gítaleikarar sáust víða í görðum og fólk víðsvegar af landinu hópaðist í kringum þá. Það var einnig mikil stemming þetta kvöld á pöbbunum tveimur í bænum og allstaðar i kringum þá. Við Hrafnkell vorum nú samt ekkert rosalega lengi úti þetta kvöld því við vorum bæði alveg rosalega þreytt og þurftum að vakna snemma til að byggja sumarhús. Laugardagurinn örðu nafni fiskidagurinn var tekin snemma og hafist var handa við að byggja og reisa húsið. Upp úr eitt var síðan farið til Dalvíkur og hátíðarhöldin skoðuð. Nýjungar voru nokkrar í ár og var gaman að smakka saltfiskvöfflur og Nings fiskisúpu. Fyrir kvöldmat var síðan haldið aftur af stað út í Skíðadal og haldið áfram að byggja. Við vorum þó komin aftur í bæinn áður en flugeldasýningin byrjaði og var hún mjög flott og byrjaði með því að Landhelgisgæslan skaut tveimur púðurskotum og brá mér ekkert smá við þessi læti en þetta var mjög flott. Mikið djamm var einnig á laugardagskvöldinu en við Hranfkell tókum því rólega og fórum að sofa snemma (já segið það bara við erum orðin gömul). Á sunnudeginum fórum við fram í bústað að vinna og komum svo aftur til Dalvíkur og pökkuðum dótinu okkar saman og héldum inn á Akureyri. Við hjálpuðum svo tengdó að flytja en þau voru að kaupa sér íbúð á eyrinni. Við kíktum svo rétt á ömmu og afa Hrafnkels inn í Skálpagerði og svo var okkur boðið í mat til Önnu og Palla. Eftir matinn þurftum við að koma við á nokkrum stöðum og gátum svo haldið austur. Við vorum ekki komin inn á Teig fyrr en um 2 leytið í nótt. Verslunarmannahelgin var annars mjög góð líka. Hranfkell kom til mín suður á föstudeginum og náði ég í hann á flugvöllinn. Þegar Hrafnkell kom inn úr dyrunum biðu hans 3 afmælispakkar frá mér. Í fyrsta var ilmvatn, í næsta var ugulele og þeim þriðja var hlaupahjól og átti Hranfkell ekki til orð. Hann byrjaði strax á því að fara á netið og leita að upplýsingum um hljóðfærið og læra grip og ekki liðu margar mínútur þar til hann var farinn að spila nokkur lög og skemmti sér konunglega við þetta. Hann fór síðan stóran hring um nágrenið á hlaupahjólinu sínu. (hann átti nú reyndar ekki von á að fá svoleiðis tæki þar sem hann hefur beðið mig um það síðustu 3-4 ár en ég alltaf sagt nei.) Það var því mjög gaman að sjá andlitið á honum þegar hann opnaði pakkann. Á laugardeginum pakkaði ég niður í tösku meðan Hrafnkell var í sturtu og vissi hann því ekkert hvað ég hafði tekið með, það eina sem hann vissi var að hann væri að fara í óvissuferð. Ég ætlaði nú að byrja ferðina á því að gefa honum Belgísgavöfflu með ís en vöfflujárnið var bilað svo ég varð að fara annað til að gefa honum að borða. Síðan héldum við af stað út út bænum og lentum í stoppi þar sem 4 bílaárekstur hafði orðið og við sátum því föst í um klukkustund á meðan sjúkrabílar, löggubílar, sjúkraþyrla, slökkviliðsbíll og fjölmiðlar keyrðu í sífellu fram hjá okkur. Svo ferðin byrjaði nú ekkert sérlega vel en Hrafnkell lét það ekki á sig fá og sat í framsætinu og spilaði á Ugulele allann tímann. Enda er þetta svo lítið og fyrirferða lítið að það er ekkert mál að spila á þetta í bílnum. Svo loksins máttum við halda för okkar áfram og þá var stefnan tekin á Selfoss. Fyrsti viðkomustaður okkar var Hótel Selfoss þar sem ég hafði verið búin að panta hótelherbergi og þriggjarétta máltíð handa okkur. Hrafnkell var ekkert smá hissa á þessari afmælisgjöf og alveg yfirsig hrifinn. Herbergið var mjög flott og maturinn mjög góður. Við kíktum svo í bíó á Selfossi og fórum og skoðuðum helli þar sem talið er að maður hafi framið sjálfsmorð í og á maðurinn að sjást þar á gangi með bláan trefil sem var einmitt notaður til þess að hengja sig í. Á sunnudeginum fengum við mat á hótelinu og fórum svo til Reykjavíkur og vorum komin heim í tæka tíð fyrir formúluna. Á sunnudagskvöldinu fórum við aftur í bíó en í þetta sinn í kópavogi. Já kallið okkur bara nördara að vera bara heima um verslunarmannahelgina en við höfðum það svo gott og það var sko engin þynka á okkar bæ því engin áfengur drykkur var drukkinn. Það var sko ljúft líka. Hrafnkell fór svo aftur austur á mánudagskvöldinu.

    Posted at 14.8.06 by hrafnkell-iris
    Comments (3)  

    Friday, August 04, 2006
    Komið þið sæl!

    Jæja það er margt búið að gerast á þessum mánuði sem liðin er frá síðustu færslu. Það helsta er auðvitað að á miðvikudaginn 2. ágúst var Hrafnkell 25 ára. Til hamingju ástin mín:)
    Hrafnkell er búinn að koma, fara aftur, koma aftur, fara aftur og á flug suður á eftir. Ég er líka einu sinni búin að fara til hans og vera frá þriðjudegi fram á fimmtudag. Hrafnkell var nú samt að vinna þarna og ég fór bara með honum í vinnuna og hann kenndi mér að beita múrskeið rétt. Eina helgi þegar Hrafnkell kom til mín var ég á aukavöktum og sáumst við því ekki eins mikið og við hefðum viljað en samt alltaf gaman að fá hann heim. Hann kom mér algjörlega á óvart með því að mæta til mín með 7 rósir þar sem ég hélt að hann ætlaði til Akureyrar því ég væri að vinna.
    Ég er búin að fara í leikhús og sjá Footloose. Ég, Ingunn, Ásta, Jóna, Rósa, Bogga og Eygló byrjuðum kvöldið á því að fara út að borða svo þurfti Eygló að fara en við hinar skelltum okkur í leikhús. Það var mjög gaman að fara svona stelpuferð og mæli ég alveg með annari fljótlega.
    Ég, Ingunn og Ásta erum búnar að fara og sjá Pirates of the Carribbean: Dead Man´s Chest. Myndin er mjög góð og Johnny Depp flottur að vanda.
    Aukadagarnir sem ég tók í vinnunni eru allir búnir og núna bíð ég bara spennt eftir að komast í frí og láta aðra vinna fyrir mig. Ég er í fríi í dag, laugardag og sunnudag en þarf að vinna frá 14-2 á mánudag og þriðjudag. Á miðvikudaginn er stefnan tekin á að keyra norður og þá hefst 12 daga sumarfríið mitt. Ég mun svo halda austur á Skriðuklaustur eftir fiskidaginn og mun vera þar síðustu vikuna hans Hrafnkels. Síðan keyrum við bara í bæinn og hann þarf ekkert að fara aftur. Úff hvað það verður ljúft.
    Verslunarmannahelgin er víst komin og ætlum við bara að vera í Reykjavík og nágreni. Ég er með smá óvissuferð fyrir Hrafnkel um helgina þar sem hann átti afmæli í fyrradag og mun ég upplýsa það eftir helgina.
    Annars er nú ekkert mikið fleira að frétta nema ég er komin með nýjan lit í hárið og nýja klippingu. Ingunn ákvað að gera mig meira töff og er ég mjög ánægð með árangurinn. Hrafnkell á eftir að sjá þetta en hann sér þetta á eftir þegar hann kemur.
    Svo bara minna alla á fiskidaginn næstu helgi. http://www.fiskidagur.muna.is/ Allir eru velkomnir.
    Góða ferð til allra Gotlandsfara sem fara í dag. Ég vona að þið skemmtið ykkur vel, ég hefði sko alveg viljað vera að fara með ykkur en einhverstaðar verður að spara.
    Farið svo varlega í umferðinni og ég elska ykkur öll:)!

    Posted at 4.8.06 by hrafnkell-iris
    Comments (2)  

    Tuesday, July 04, 2006
    Halló allir

    Langt síðan ég hef látið í mér heyra og hef svo sem enga sérstaka afsökun fyrir því, bara bloggleti í gangi en nú verður bætt úr því:)
    Helgina 23-25 júní héldum við Rósa keyrandi norður, komum við í Kb banka í Borgarnesi og heilsuðum upp á Eggert en annars var lítið um stopp. Hrafnkell kom þann dag keyrandi að austan til Akureyrar og hittumst við þar og vá hvað það var gaman að sjá hann aftur eftir tveggja vikna aðskilnað. Helgin leið samt allt of hratt og þá þurftum við víst að halda í sitt hvora áttina:( Við náðum samt að afreka það, þessa helgi að vesla okkur eitt stykki fartölvu sem Hrafnkell tók með á Klaustur til að vinna ritgerðina sína.
    Síðustu helgi var ég að vinna en Hrafnkell fór til Dalvíkur og hitti fjölskylduna mína þar sem vinnuhelgi í nýja sumarbústaðnum okkar var plönuð. Þau náðu að gera alveg helling en nóg er samt eftir að gera.
    Ég er samt búin að dunda ýmislegt annað en að vinna t.d komu Eydís, Birna og Sigrún til mín eitt þriðjudagskvöld og við spiluðum og spjölluðum alveg helling og rosa gaman að hitta þær:) Ég og Ingunn fórum í síðustu viku út að borða og í bíó og enduðum á kaffihúsi seinna um kvöldið með Rósu. Í dag fórum við Kristín Erla saman á diskó-pönk sýninguna á Árbæjarsafni og sáum að þar er að finna fullt af hugmyndum sem við eigum. Í gærkveldi kíktum við Ingunn og Ásta svo á Þrúði og sátum á spjalli fram eftir kvöldi og var mjög gaman að hitta þær allar:)
    Hrafnkell er svo búinn að panta flug suður á fimmtudaginn og hlakka ég rosalega mikið til að fá hann heim, þótt þetta sé bara 3 daga stopp. Við erum bæði í fríi á föstudag, laugardag og sunnudag og eigum svo eftir að njóta þess. Hugmyndin er jafnvel að fara í útilegu á laugardagskvöldið en það kemur í ljós.
    Annars eru stærstu fréttirnar þær að ég er búin að redda mér fríi á fiskidaginn og alla þá helgi. Mun vinna það upp í júlí og verð þar af leiðandi í viku fríi og ég hlakka svo til:) Hverjir vilja koma með mér á fiskidaginn? það er alveg ógeðslega gaman og allt frítt:)
    Við Hrafnkell erum annars bæði í fríi um verslunarmannahelgina, hvað ætlar fólk að gera þá ?

    Posted at 4.7.06 by hrafnkell-iris
    Comments (5)  

    Monday, June 19, 2006
    Einmannaleiki, veikindi og tölvuleysi hrjá mig þessa dagana.

    Hæ hæ Núna er rúm vika síðan Hrafnkell fór austur og er búinn að klára tímann sinn á Vopnafirði. Þau fundu alveg helling og honum fannst mjög gaman þar utan við að þar er ekkert gsm símasamband. Verð kannski að taka það fram að hann var aðeins fyrir utan Vopnafjörð en samt, alveg út í hött! Þau fengu samt einhvern NMT síma svo ég gat alltaf hringt í þann síma. Hrafnkell spilaði svo á tónleikum á föstudagskvöldið á akureyri og hélt á Skriðuklaustur á laugardaginn. Fyrsti dagurinn hans þar er í dag. Hrafnkell verður víst bara að vinna með kvennfólki í sumar þar sem allir Íslendingarnir og útlendingarnir eru stelpur. Það leggst svona misvel í hann en kemur betur í ljós í dag þegar allir verða mættir á svæðið.
    Af mér eru misgóðar sögur líka, ég sakna Hrafnkels og er svona eiginlega búin að vera veik síðan hann fór, ég ætla nú ekki að telja upp alla sorgarsöguna hérna, því hún er frekar niðurdrepandi en ef einhver vill vita þá er bara að hafa samband við mig. Ég er núna komin á 10 daga pensilínkúr þar sem kom í ljós að ég væri með bólgur í ennisholunum og það væri ástæðan fyrir því að ég hóstaði þar til ég ældi. Jamm ekki gaman (sérstaklega ekki að vera í vinnunni). Fyrir þá sem voru að pæla þá var þetta ekki sorgarsagan sko.
    Við Hrafnkell fengum boðskort á opnun sýningarinnar Diskó-Pönk í Árbæjarsafni síðastliðinn föstudag. Hrafnkell var fyrir austan og ég var í fyrsta lagi að vinna og í öðru lagi að þó ég hefði getað mætt síðar þá var ég það slöpp að ég varð að fara heim og sofa. Svo hvorugt okkar gat farið en hefðum sko glöð viljað fara og eigum öruglega eftir að kíkja á sýninguna við tækifæri.
    Næstu helgi ætlum við Hrafnkell að hittast fyrir norðan. Ég ætla að fara keyrandi á föstudaginn, ef að einhverjum vantar far þá má hinn sami alveg hafa samband. Fer keyrandi suður aftur á sunnudeginum.
    Næsta miðvikudag er ég að byrja á kvöldvöktum í vinnunni minni sem þíðir að ég verði að snúa sólarhringnum alveg við. Þá byrja ég að vinna kl 14:00 og er að vinna til 02:00 og jafnvel eitthvað lengur fram á morguninn. Það verður öruglega smá breyting frá því að vakna kl 03:00 á morgnanna eins og ég hef verið að gera síðastliðinn mánuðinn. Ég verð á kvöldvakt í 2 vikur og fer svo aftur á morgunvakt. Ég þarf svo aftur á kvöldvakt í byrjun ágúst.
    Tölvan mín hefur látið illa síðustu daga og var ekki hægt að kveikja á henni svo ég hef ekkert verið í sambandi við umheiminn og hélt að ég hefði glatað Ba ritgerðinni minni, en í dag líður henni greinilega betur eins og mér og ég hef því tekið afrit að gögnunum og allt lítur bjartara út hérna úr einmannalegu íbúðinni okkar.

    Posted at 19.6.06 by hrafnkell-iris
    Comments (6)  

    Tuesday, June 06, 2006
    Heimsendir, svefnherbergi, afmæli og vinna

    Í dag er 06.06.06. Flott dagsetning og þá kannski helst fyirir djöfladýrkendur;) Annars heyrði ég nú af því að heimsendir ætti að verða í dag. Ég hef nú ekki orðið vör við hann en dagurinn alls ekki búinn.
    Núna er búið að breyta vöktunum mínum í vinnunni og mæti ég alltaf klukkan 05:00 á morgnanna og vinn til 17:30. Ég er því að vakna um 3 á morgnanna þar sem ég þarf að ná í eina stelpu í Laugardalinn og hitta svo tvær í Hafnarfirði og koma okkur í bílana.
    Nýjustu fréttir eru annars þær að ég er orðin 24. ára:) Ég átti afmæli í fyrradag, hvítasunnudag. Takk allir sem munduð eftir mér, alltaf gaman að fá hringingar og sms á merkisdögum:) Foreldrar og yngstu bræður Hrafnkels eru búin að vera hjá okkur síðan á föstudagskvöldið en þau lögðu af stað norður í dag. Alltaf gaman að fá þau í heimsókn:) Á fimmtudaginn fórum við Hrafnkell og keyptum okkur tvö náttborð, nýtt rúmteppi og kodda og tvo lampa í herbergið okkar. Vildum gera herbergið okkar aðeins meira kósý og erum við mjög ánægð með útkomuna. Ég var svo bara að vinna föstudag, laugardag og sunnudag en þegarég kom heim á sunnudag beið mín steik, brúnaðar kartöflur og meðlæti. Í eftirmat fékk ég svo afmælisköku með 24 kertum sem var geggjað góð. Mamma hans Hrafnkels hafði þá staðið í ströngu við að baka, elda og gera fínt, meðan ég var að vinna. Ég lá svo afvelta það sem eftir lifði kvöldsins. Á mánudaginn komu svo Rósa og Davíð í heimsókn um 2 leytið með blöðrur og köku sem þau höfðu sjálf bakað. Hún var mjög góð og rosalega sætt af þeim. Þau komu svo inn og síðar kom Ingunn í smá heimsókn. Síðan um hálf fjögur leitið kom fleiri í kaffi til okkar, Silla, Filli, Helgi Fannar og Pétur Snær, Kristinn, Elsba og Lilja, Auður, Bjarni, Ragna, Bjarni Haukur, Sigrún, Aron Daði og Ásta Karen, Ásta, Guðni og Eiríkur Bogi, Karlotta og Lalli. Þannig að það var heljarinnar fjör á þessum bænum:) Ég fékk svo fullt af afmælispökkum, 14 kt gulleyrnarlokka, gjafabréf í Kringluna, 2 body lotion, flottan bol, teiknaða mynd, blómvönd, bleika rós, tréplatta sem á stendur: “Að eignast vin tekur andartak, að vera vinur tekur alla ævi”. Svo á ég eftir að velja mér einhver föt frá Hrafnkeli í afmælisgjöf. Takk allir fyrir mig:)
    Næstu helgi langar mig að kíkja norður þar sem Jóna er að útskrifast sem leikskólakennari og er búin að bjóða mér í veislu á laugardaginn. Á sunnudaginn er svo sjómannadagurinn og þá er altaf mikið fjör á Dalvík, þá á einnig að heiðra pabba minn í sjómannamessunni svo gaman væri að vera viðstaddur það. Við eigum samt eftir að sjá til þar sem Hrafnkell fer austur á sunnudaginn og við ætlum að hitta vini okkar á föstudagskvöldið en allur þessi vinahópur hefur ekki hisst saman síðan fyrir mörgum árum þegar við bjuggum öll á Akureyri. Okkar hlakkar mikið til:) Síðan er einnig fyrirhugað staffadjamm hjá A vaktinni í vinnunni minni. Þar verður grillmatur, MIKIÐ áfengi, söngur, gítar, tjörn og skógur. Hvað þarf fleira til að skemmta sér? Jæja hafið það öll sem best, kv, Íris

    Posted at 6.6.06 by hrafnkell-iris
    Comments (4)  

    Wednesday, May 31, 2006
    Hey

    Lífið á vellinum verður alltaf athyglisverðara með hverjum deginum sem líður. Það hefur ekki ennþá liðið sá dagur í vinnunni að ég hafi ekki allavegana þekkt eða kannast við einn farþega. Í gær fengum við smá kynningu á Clarins snyrtivörum og fengum svo smá prufur til að fara með heim og prófa. Í júní verða kynningar í hverrri viku frá einhverri heildsölu. Síðan þann 20. júní fer ég á námskeið hjá Dior, það er frönsk kona sem kemur til Íslands og heldur námskeið fyrir okkur og síðan fáum við frían kvöldmat á Hótel Keflavík á eftir. Það námskeið er mun lengra en hin, en stendur frá 13:30-18:00 og maturinn er svo á eftir. Það er frábært starfsfólk að vinna með mér og líkar mér bara mjög vel þarna. Held ég hafi ekki gert neina vitleysu þó ég hafi hafnað 3 vinnum sem tengjast náminu mínu núna í sumar og ákveðið að gera eitthvað allt annað. Enda er mikil þjóðfræði í þessu, fullt af ólíku fólki, frá ólíkum stöðum með ólíka menningu, siði og kenningar. Svo eru auðvitað mörg kostuleg atvik sem koma upp sem maður á erfitt með að hlægja ekki yfir:)
    Svona að öðru þá var síðasta helgi bara mjög fín í alla staði. Á föstudagskvöldinu fórum við í bíó með Ingunni og Sigrúnu sem vinnur með henni. Við fórum á Da Vinci Code. Ég var löngu búin að lesa bókina en Hrafnkell ekki svo við fórum á ólíkum forsendum á myndina en vorum bæði bara nokkuð ánægð. Þó eru nokkur atriði sem ég hefði viljað hafa örlítið öðruvísi en í heildina bara mjög fín mynd:) Á laugardagskvöldinu fórum við í þrítugsafmæli hjá Guðrúnu og það var heljarinnar fjör, alveg dælt í mann bjórnum svo við komum á rassgatinu út, kannski þessar 2 rauðvínsflöskur sem við drukkum með kvöldmatnum hafi líka haft sitt að segja;) Ég hitti svo aðeins Ingunni, Rósu og Boggu en var svo full að ég stakk þær af og fór heim að sofa s.s án þess að láta þær vita. Var með móral daginn eftir, sorry aftur stelpur:( Samt var nú gott að við Hrafnkell fórum bara heim að sofa því þynnkan næsta dag hefði ekki verið betri ef við hefðum verið lengur. Við kúrðum svo bara undir sæng í þynnku yfir formúlunni og pöntuðum hamborgara heim. Við vorum þó orðin hress að lokinni formúlu. Síðan klukkan sex var haldið á Pottinn og pönnuna þar sem stórfjölskyldan ætlaði út að borða til að fagna sigri í Hæstarétti, svo buðum við auðvitað svona þeim sem standa okkur næst með en voru ekki með í málinu. Þeir sem fóru út að borða eru: Ég og Hrafnkell, Silla, Filli, Helgi Fannar og Pétur Snær, Auður, Bjarni, Ragna Björg, Bjarni Haukur, Sigrún Elfa, Aron Daði og Ásta Karen, Kristinn, Elsba, Haukur, Eva Björk, Lilja, Ásta og Eiríkur Bogi, Karlotta og Lalli, Sibbi, Jón, Sunna og Ingibjörg Andrea. S.s hátt í þrjátíu manns og þar af 6 börn yngri en 2 og hálfs árs svo það var mikið fjör;) Ég fékk mér sveppasúpu í forrétt og kjúklinga pastasalat í aðalrétt. Hrafnkell fékk sér sveppasúpu í forrétt en fisk og franskar í aðalrétt.
    Núna er ég svo komin í tveggja daga frí og ætla mér að njóta þess:)

    Posted at 31.5.06 by hrafnkell-iris
    Comments (3)  

    Friday, May 26, 2006
    Vá annað blogg í dag:)

    Ég er búin að fara og kjósa utankjörstaðar. Ég er víst ennþá með lögheimili á Dalvík svo ég varð að kjósa þar. Mér finnst alltaf gaman að fara og kjósa, það er viss stemming í því. Var samt að pæla áðan að það væri hægt að gera mjög skemmtilega þjóðfræði rannsókn á fólki á kjörstað og á kjördag. Sumt fólk, þá aðalega eldra fólk klæðir sig í sitt fínasta púss áður en það heldur á kjörstað. Áður fyrr hefur þetta öruglega verið skemmtileg bæjarferð fyrir fólk í sveitum, að skella sér í bæinn, hitta þar fólk og spjalla um sveitarstjórnarmál. Ég veit það mjög vel að það á alls ekki að hafa áróður á kjörstað enda er ég ekki að tala um neitt slíkt, heldur bara létt spjall um veðrið og svona. Kannski hefur þetta ekki breyst eins mikið og við viljum af láta. Síðustu sveitarstjórnarkosningar voru sama dag og ég útskrifaðist, sem merkir að það eru 4 ár síðan ég útskrifaðist og 10 ár síðan ég fermdist að ég held upp á dag, merkilegt ekki satt? Annars heyrði ég af því að allir flokkar hér í Reykjavík ætli að reyna að kaupa sér síðustu atkvæðin með pizzu og bjór í kvöld. Svo allir fátæklingar eins og ég sjálf eru þið ekki með í ókeypis pizzuveislu í kvöld? (Fékk nú samt eina ókeypis pizzuveislu í gær frá Fríhöfninni en iss allt í lagi að borða pizzu alla daga). Við viljum frían bjór, pizzur og betri sveitarfélög!
    Svona að lokum fyrir þá sem búa í Reykjavík en vita ekki hvað þeir eiga að kjósa er gott að fara inn á afstada.is og svara nokkrum spurningum. Ég prófaði að svara þessum spurningum og fékk áhugaverða niðurstöðu. Vill samt taka fram að þetta á bara við í Reykjavík og hafði því ekkert að gera með afstöðu mína í dag. Hér kemur svo niðurstaðan mín.
    Þú ert 30% hlynntur S lista
    Þú ert 20% hlynntur V lista
    Þú ert 20% hlynntur F lista
    Þú ert 20% hlynntur D lista
    Þú ert 10% hlynntur B lista
    Kv, Íris

    Posted at 26.5.06 by hrafnkell-iris
    Make a comment  

    Next Page