 |

Hrafnkell Brimar Hallmundsson

Íris Dögg Hauksdóttir
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
 |
Friday, May 26, 2006
Ég lofaði Birnu að blogga oftar:)
Í síðustu viku fór ég í fyrsta skipti í hæstarétt og hlustaði á lögfræðinga bera fram mál sín. Það var s.s verið að taka málið okkar fyrir. Núna er einnig komin úrskurður og að sjálfsögðu unnum við (3 skiptið sem við vinnum, tvisvar fyrir héraðsdómi og núna fyrir hæstarétti). Vonandi er þessu leiðindamáli bara lokið núna, það hefur staðið yfir í 3 ár og alltof mikil orka farið í mál sem er bara rugl út í gegn. Það var nú samt frekar undarleg tilfinning að fá stefnu í hendurnar fyrir 3 árum og að sama skapi frekar skrítið að heyra nafnið sitt nefnt í hæstarétti. Ég get samt ekki logið því að stundum hefur hugurinn reikað þessi síðustu þrjú ár, hvort ekki sé nóg að missa móður og afa , heldur þurfa að ganga í gegnum þetta líka.
Svona að öðru þá er Hrafnkell búinn að vera í björgunaruppgreftri á miðvikudaginn og aftur í dag. Hann fékk frí í Ólavíu og Óliver og er því staddur ofan í skurði akkúrat núna. Ég var að vinna í gær uppstigningardag en Hrafnkell í fríi, ég er í fríi í dag, morgun og sunnudag en Hrafnkell að vinna í dag og á morgun. Við erum aldrei í fríi á sama degi nema annan hvern sunnudag. Annars stittist nú í að Hrafnkell haldi austur hann fer á Vopnafjörð líklegast 11 júní og grefur þar í viku og heldur síðan á Skriðuklaustur þar sem hann verður í 2 mánuði. Hann mun þó koma heim einhverjar helgar en samt alltof langur tími án hans, ég er farin að kvíða fyrir:(
Við Hrafnkell erum hætt við að fara til Gotlands í ágúst eins og til stóð, því við ætlum að spara peninga og reyna að borga niður skuldirnar okkar. Einnig erum við búin að ákveða að gifta okkur í júlí 2007 í Skíðadal þar sem við erum að byggja okkur sumarbústað og (eigum þar lóð og bústað fyrir). Við ætlum að koma upp stóru tjaldi fyrir veisluna en athöfnin sjálf verður í einhverri laut þarna.
Að lokum bið ég bara að heilsa ykkur og farið vel með ykkur:) Kv, Íris
Posted at 26.5.06 by hrafnkell-iris
Monday, May 22, 2006
Héðan er bara allt fínt að frétta. Hrafnkell er alltaf á fullu í vinnunni sinni og líkar mjög vel í Ólavíu og Óliver, svo þið ólétubumbur (ekki svo fáar sem við vitum um) Hrafnkell er alveg með á hreinu hvaða barnastóla og hvaða vagna er best að kaupa:) Annars er ég líka byrjuð að vinna og líkar bara mjög vel. Það er auðvitað frekar undarlegt að vakna fyrir kl 4 á næturnar til að gera sig klára fyrir vinnuna. Allavegana í fyrsta skipti sem ég hef málað mig svona seint eða snemma. Ég er farin að keyra á milli með stelpu og það sparar bensín og heldur okkur vakandi á meðan. Svo seinna bætast jafnvel tvö önnur í hópinn og þá þurfum við bara að keyra í fjórða hvet skiptið til Keflavíkur. Starfsfólkið er frábært og mórallinn góður og hef ég ekki yfir neinu að kvarta. Flestir kúnnarnir glaðir að vera á leið í fríið, nokkrir kannski of glaðir en förum ekkert nánar út í það;) Vinnutíminn er frá hálf sex á morgnanna til hálf sex á kvöldin. Ég hef plantað mér í brottfaraverslunina og er þar í snyrtivörudeildinni og þar vilja þau víst hafa mig. Það er alveg rosalega mikið að læra og þarf ég að þekkja gríðarlegt magn að allskonar merkjum og vörum. Ég held ég sé búin að læra meira um snyrtivörur, húðgerðir, verndun húðarinnar og áhrifaþætti, á þremur dögum í vinnunni en alla mína æfi. Einnig þekkir maður orðið öll helstu ilmvötn sem fyrirfinnast og veit hvað er notað í nokkrum:)
Laugardaginn 13. maí átti að vera partí heima hjá Kristínu og Trausta en Trausti varð veikur svo partíið fluttist heim til Hákons. Hrönn, Kristín, Úlla, Pési og við Hrafnkell mættum þangað og var þetta mjög rólegt en svaka gaman. Því miður komust Edda Linn, Lísa og Trausti ekki en þau koma bara næst. Hákon átti annars stórafmæli 6. maí svo við fórum með smá gjöf handa honum og þetta var svona hálfpartinn afmæli í leiðinni. Sunnudaginn 14 maí átti pabbi minn afmæli og þá fór ég til Sillu í smá föndurklúbb. Einnig kíktum við Hrafnkell á sýninguna í Aðalstræti. Ég var búin að vinna 40% hópverkefni um sýninguna svo það var mjög gaman að sjá þetta allt raunverulegt en ekki bara á þrívíddarmyndum og teikningum. Þann 17. maí fór ég á námskeið í Keflavík um snyrtifræði á vegum vinnunar og var það mjög fínt. 18. maí var undankeppni eurovision og partí hjá Sillu systur. Ég ákvað að drífa mig þangað svo Hrafnkell hefði frið til að horfa á skjá einn eða dvd á meðan, þar sem hann hefur ekki gaman af þessari keppni. Kristinn bróðir, Elsba og börnin mættu og einnig Auður systir, Bjarni og börnin í partíið. Ég endaði nú inn í herbergi með 4 börn að byggja úr kubbum en ekki að horfa á alla keppnina en heyrði samt óminn af henni. Sá samt mestan hlutan af keppninnni og fannst þetta nú ekkert voðalega flott hjá Sylvíu Nótt en gat í raun ekki verið meira sama hvort hún kæmist áfram eða ekki. (það vantar alveg þetta eurovisiongen í mig, ætli Kári Stefáns sé búinn að finna það?). Ég var nú samt farin snemma heim þar sem fyrsti vinnudagurinn minn var á föstudaginn og ég þurfti að vakna MJÖG snemma og keyra til Keflavíkur. Á föstudagskvöldinu fór Hrafnkell í próflokadjamm með fornleifafræðinni, ég nennti nú ekki með enda vinna snemma morguninn eftir. Hrafnkell skemmti sér mjög vel en hringdi nú nokkrum sinnum í mig og sagðist vilja að ég væri með sér. Á laugardagskvöldinu hafði ég planað að liggja heima í sófanum og horfa á Eurovision keppnina en þar sem ég hafði lítið sofið síðustu tvær nætur og unnið 12 tíma vaktir í tvo daga, var ég alveg búin á því og sofnaði áður en keppnin byrjaði og vaknaði ekki fyrr en keppnin var búin. Á sunnudaginn(í gær) var svo bara drifið sig í vinnuna og beint í afmæli eftir hana. Eiríkur Bogi var að halda upp á eins árs afmælið sitt:) Afmælið var að verða búið þegar ég kom en ekki kökurnar samt;) Ásta var með veislu fyrir allavegana 60 manns. Svo það verður kökur í allar máltíðir hjá þeim næstu mánuðina. Núna er ég komin í vaktarfrí og verð í fríi í dag og á morgun en mæti í vinnu á miðvikudag og fimmtudag. Svo er þriggja daga helgarfrí:) Erum á leið í afmælispartí til Guðrúnar næstu helgi svo ég fæ nú einhvern smá smjörþef af þessu partíi sem ég missti af um síðustu helgi.
Jæja best að reyna að gera eitthvað. Kveðja í bili Íris
Posted at 22.5.06 by hrafnkell-iris
Friday, May 12, 2006
Í dag er 12 maí sem að þýðir að í dag eru liðin 12 ár frá því að móðir mín kvaddi okkur og gafst upp á baráttunni við krabbameinið. Ég var þá að verða 12 ára gömul. Sá dagur líður ekki að ég hugsi ekki til mömmu. Aldrei held ég að ég eigi eftir að komast yfir missinn en að sjálfsögðu hef ég lært að lifa með honum. Aðra stundina er ég sorgmædd yfir því hversu fá ár ég fékk með henni en hina er ég þakklát fyrir að hafa allavegana fengið næstum 12 ár. Það eru alls ekki allir sem eru eins heppnir og ég, að hafa átt bestu mömmu í heiminum og hafa fengið tæplega 12 ár til að kynnast henni. Auðvitað man ég ekki eftir fyrstu árunum en ég á heilan helling af góðum minningum sem ég lifi fyrir.
Í dag finnst mér samt að ákveðin tímamót séu hjá mér, þar sem ég lifði í næstum tólf ár með henni og hef nú lifað í næstum 12 ár án hennar. Mér finnst svo langt síðan að hún dó og sé alltaf betur og betur hvað ég var mikið barn þarna og hefði átt að gera svo margt öðruvísi. Að sama skapi finnst mér svo stutt síðan þar sem dagurinn er mér svo minnistæður að það er eins og hann hafi verið í gær.
Það að missa móður eða föður styrkir einstaklinga og þroskar þá og er ég viss um að það hafi einnig verið í mínu tilfelli. Ég er þó ætíð þakklát fyrir að eiga frábæra fjölskyldu og vini sem gátu hjálpað mér í gegnum þetta og gera enn.
Þegar ég lít til baka og hugsa um þessi 12 ár sem liðin eru og allt sem gerst hefur á þessum tíma þá lekur tár á vanga minn. Mér verður hugsað um allt það sem ég vildi að mamma hefði verið með í og finnst eins og hún hafi misst af svo mörgu og við svo mörum stundum með henni. Ég er þó sannfærð um að hún er hérna hjá okkur og þá sérstaklega þegar við þörfnumst hennar sem mest.
Að lokum vil ég minna alla á að mæðradagurinn er á sunnudaginn og endilega gerið eitthvað fallegt fyrir mömmur ykkar ef þið hafið tækifæri á því.
Posted at 12.5.06 by hrafnkell-iris
Friday, May 05, 2006
Vó erum við þá orðin fræg?
Eins og glöggir lesendur vita þá birtist skemmtilegur linkur á b2.is
á Þjóðbrókarsíðuna. Linkurinn er undir yfirskriftinni skrítið nafn á nemendafélagi. Ætli fólk um allt land sé núna að skoða myndir af mér sem vampíru? Annars segi ég að öll kynning sé góð svo endilega kíkið þið á þetta. Hver veit nema það verði óvenju margir í þjóðfræði í haust.
Posted at 5.5.06 by hrafnkell-iris
Wednesday, May 03, 2006
Það er margt og mikið að frétta af okkur enda langt síðan við léttum heyra í okkur. Ég ætla nú samt að stikkla á stóru í upptlaningu á því.
Páskarnir voru mjög góðir þrátt fyrir að við kæmumst ekki norður en okkur tókst að læra slatta ásamt öðru. Ingunn kom í mat til okkar á skírdag, við fórum í mat til Kristins og Elsbu á föstudeginum langa. Við, Ingunn, Ásta, Eiríkur Bogi og Bjarni Jón fórum til Þrúðar, Tóta og Hjartar Einars á laugardagskvöldinu og við grilluðum öll saman. Það var mjög gaman en verst að Guðni komst ekki með en hann verður bara með næst. Á sunnudeginum elduðum við skötuhjú síðan páskasteik og höfðum það gott.
Á sumardaginn fyrsta fórum við Hrafnkell í Gljúfrastein og fengum að skoða hús skáldsins.
Þann 13 apríl áttum við Hrafnkell 8 ára afmæli. Gaman af því:)
Þann 21. apríl eignuðust Stebbi og Hilda dóttur og viljum við óska þeim til hamingju með hana.
Við Hrafnkell erum bæði búin með öll prófin okkar en eigum bæði ritgerðir eftir.
Við erum búin að fresta útskriftinni okkar fram í október og ætlum því ekki að skila BA ritgerðunum fyrr en í sumar. Þessi ákvörðun okkar byggist bæði á því að við viljum lengri tíma til að fullkomna og bæta þær. Einnig fáum við að öllum líkindum að vera á stúdentagörðunum fram í desember með þessu fyrirkomulagi og það sparar mikla peninga og tíma að leita að nýrri íbúð strax. Við erum mjög sátt við þessa ákvörðun okkar.
30 apríl áttum við Hrafnkell 1 árs trúlofunar afmæli og þá voru liðin 9 ár síðan við hittumst fyrst.
Ég er búin að fara á eitt námskeið útaf nýju vinnunni minni og á eftir að fara á annað og byrja svo að vinna 19 maí.
Annars lítið að frétta nema það er komið sumar hér í borginni og að verða mánuður síðan við skiptum yfir á sumardekk.
Hafið það öll gott og ég kveð að sinni, Íris
Posted at 3.5.06 by hrafnkell-iris
Tuesday, May 02, 2006
Setti inn nokra linka hérna til vinstri. Set inn fleiri við tækifæri, prófalestur bÃður mÃn. Finnst ykkur ekki annars sÃðan lÃta betur svona út?
Kveðja Ãris
Posted at 2.5.06 by hrafnkell-iris
Setti inn nokra linka herna til vinstri. Set inn fleiri við tækifæri, profalestur bidur min. Finnst ykkur ekki annars sidan lita betur ut? Reyndar eru islenskir stafir ad bogga mig tessa stundina, en eg kanna tetta vid tækifæri:)
Kveðja Ãris
Posted at 2.5.06 by hrafnkell-iris
Wednesday, April 26, 2006
Við hjúin tókum svona próf á netinu og fengum sömu niðurstöðu. Enda kannski ekki skrýtið þar sem við erum alltaf saman á jólunum.
|
Your Christmas is Most Like: The Muppet Christmas Carol
|
You tend to reflect on Christmas past, present, and future...
And you also do a little singing.
|
Posted at 26.4.06 by hrafnkell-iris
|
You Are 30% Boyish and 70% Girlish
|
Even if you're not a girl, you're very feminine.
You're in touch with your feelings, and your heart rules you.
A bit of a emotional roller coaster, one moment you're up and the next you're down.
But no matter what, you try to be as cute and perky as possible.
|
Posted at 26.4.06 by hrafnkell-iris
|
You Are 60% Boyish and 40% Girlish
|
You are pretty evenly split down the middle - a total eunuch.
Okay, kidding about the eunuch part. But you do get along with both sexes.
You reject traditional gender roles. However, you don't actively fight them.
You're just you. You don't try to be what people expect you to be.
|
Posted at 26.4.06 by hrafnkell-iris
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|