|
Ég er búin að fara og kjósa utankjörstaðar. Ég er víst ennþá með lögheimili á Dalvík svo ég varð að kjósa þar. Mér finnst alltaf gaman að fara og kjósa, það er viss stemming í því. Var samt að pæla áðan að það væri hægt að gera mjög skemmtilega þjóðfræði rannsókn á fólki á kjörstað og á kjördag. Sumt fólk, þá aðalega eldra fólk klæðir sig í sitt fínasta púss áður en það heldur á kjörstað. Áður fyrr hefur þetta öruglega verið skemmtileg bæjarferð fyrir fólk í sveitum, að skella sér í bæinn, hitta þar fólk og spjalla um sveitarstjórnarmál. Ég veit það mjög vel að það á alls ekki að hafa áróður á kjörstað enda er ég ekki að tala um neitt slíkt, heldur bara létt spjall um veðrið og svona. Kannski hefur þetta ekki breyst eins mikið og við viljum af láta. Síðustu sveitarstjórnarkosningar voru sama dag og ég útskrifaðist, sem merkir að það eru 4 ár síðan ég útskrifaðist og 10 ár síðan ég fermdist að ég held upp á dag, merkilegt ekki satt? Annars heyrði ég af því að allir flokkar hér í Reykjavík ætli að reyna að kaupa sér síðustu atkvæðin með pizzu og bjór í kvöld. Svo allir fátæklingar eins og ég sjálf eru þið ekki með í ókeypis pizzuveislu í kvöld? (Fékk nú samt eina ókeypis pizzuveislu í gær frá Fríhöfninni en iss allt í lagi að borða pizzu alla daga). Við viljum frían bjór, pizzur og betri sveitarfélög!
Svona að lokum fyrir þá sem búa í Reykjavík en vita ekki hvað þeir eiga að kjósa er gott að fara inn á afstada.is og svara nokkrum spurningum. Ég prófaði að svara þessum spurningum og fékk áhugaverða niðurstöðu. Vill samt taka fram að þetta á bara við í Reykjavík og hafði því ekkert að gera með afstöðu mína í dag. Hér kemur svo niðurstaðan mín.
Þú ert 30% hlynntur S lista
Þú ert 20% hlynntur V lista
Þú ert 20% hlynntur F lista
Þú ert 20% hlynntur D lista
Þú ert 10% hlynntur B lista
Kv, Íris
|