|
Lífið á vellinum verður alltaf athyglisverðara með hverjum deginum sem líður. Það hefur ekki ennþá liðið sá dagur í vinnunni að ég hafi ekki allavegana þekkt eða kannast við einn farþega. Í gær fengum við smá kynningu á Clarins snyrtivörum og fengum svo smá prufur til að fara með heim og prófa. Í júní verða kynningar í hverrri viku frá einhverri heildsölu. Síðan þann 20. júní fer ég á námskeið hjá Dior, það er frönsk kona sem kemur til Íslands og heldur námskeið fyrir okkur og síðan fáum við frían kvöldmat á Hótel Keflavík á eftir. Það námskeið er mun lengra en hin, en stendur frá 13:30-18:00 og maturinn er svo á eftir. Það er frábært starfsfólk að vinna með mér og líkar mér bara mjög vel þarna. Held ég hafi ekki gert neina vitleysu þó ég hafi hafnað 3 vinnum sem tengjast náminu mínu núna í sumar og ákveðið að gera eitthvað allt annað. Enda er mikil þjóðfræði í þessu, fullt af ólíku fólki, frá ólíkum stöðum með ólíka menningu, siði og kenningar. Svo eru auðvitað mörg kostuleg atvik sem koma upp sem maður á erfitt með að hlægja ekki yfir:)
Svona að öðru þá var síðasta helgi bara mjög fín í alla staði. Á föstudagskvöldinu fórum við í bíó með Ingunni og Sigrúnu sem vinnur með henni. Við fórum á Da Vinci Code. Ég var löngu búin að lesa bókina en Hrafnkell ekki svo við fórum á ólíkum forsendum á myndina en vorum bæði bara nokkuð ánægð. Þó eru nokkur atriði sem ég hefði viljað hafa örlítið öðruvísi en í heildina bara mjög fín mynd:) Á laugardagskvöldinu fórum við í þrítugsafmæli hjá Guðrúnu og það var heljarinnar fjör, alveg dælt í mann bjórnum svo við komum á rassgatinu út, kannski þessar 2 rauðvínsflöskur sem við drukkum með kvöldmatnum hafi líka haft sitt að segja;) Ég hitti svo aðeins Ingunni, Rósu og Boggu en var svo full að ég stakk þær af og fór heim að sofa s.s án þess að láta þær vita. Var með móral daginn eftir, sorry aftur stelpur:( Samt var nú gott að við Hrafnkell fórum bara heim að sofa því þynnkan næsta dag hefði ekki verið betri ef við hefðum verið lengur. Við kúrðum svo bara undir sæng í þynnku yfir formúlunni og pöntuðum hamborgara heim. Við vorum þó orðin hress að lokinni formúlu. Síðan klukkan sex var haldið á Pottinn og pönnuna þar sem stórfjölskyldan ætlaði út að borða til að fagna sigri í Hæstarétti, svo buðum við auðvitað svona þeim sem standa okkur næst með en voru ekki með í málinu. Þeir sem fóru út að borða eru: Ég og Hrafnkell, Silla, Filli, Helgi Fannar og Pétur Snær, Auður, Bjarni, Ragna Björg, Bjarni Haukur, Sigrún Elfa, Aron Daði og Ásta Karen, Kristinn, Elsba, Haukur, Eva Björk, Lilja, Ásta og Eiríkur Bogi, Karlotta og Lalli, Sibbi, Jón, Sunna og Ingibjörg Andrea. S.s hátt í þrjátíu manns og þar af 6 börn yngri en 2 og hálfs árs svo það var mikið fjör;) Ég fékk mér sveppasúpu í forrétt og kjúklinga pastasalat í aðalrétt. Hrafnkell fékk sér sveppasúpu í forrétt en fisk og franskar í aðalrétt.
Núna er ég svo komin í tveggja daga frí og ætla mér að njóta þess:)
|