|
Í dag er 06.06.06. Flott dagsetning og þá kannski helst fyirir djöfladýrkendur;) Annars heyrði ég nú af því að heimsendir ætti að verða í dag. Ég hef nú ekki orðið vör við hann en dagurinn alls ekki búinn.
Núna er búið að breyta vöktunum mínum í vinnunni og mæti ég alltaf klukkan 05:00 á morgnanna og vinn til 17:30. Ég er því að vakna um 3 á morgnanna þar sem ég þarf að ná í eina stelpu í Laugardalinn og hitta svo tvær í Hafnarfirði og koma okkur í bílana.
Nýjustu fréttir eru annars þær að ég er orðin 24. ára:) Ég átti afmæli í fyrradag, hvítasunnudag. Takk allir sem munduð eftir mér, alltaf gaman að fá hringingar og sms á merkisdögum:)
Foreldrar og yngstu bræður Hrafnkels eru búin að vera hjá okkur síðan á föstudagskvöldið en þau lögðu af stað norður í dag. Alltaf gaman að fá þau í heimsókn:)
Á fimmtudaginn fórum við Hrafnkell og keyptum okkur tvö náttborð, nýtt rúmteppi og kodda og tvo lampa í herbergið okkar. Vildum gera herbergið okkar aðeins meira kósý og erum við mjög ánægð með útkomuna. Ég var svo bara að vinna föstudag, laugardag og sunnudag en þegarég kom heim á sunnudag beið mín steik, brúnaðar kartöflur og meðlæti. Í eftirmat fékk ég svo afmælisköku með 24 kertum sem var geggjað góð. Mamma hans Hrafnkels hafði þá staðið í ströngu við að baka, elda og gera fínt, meðan ég var að vinna. Ég lá svo afvelta það sem eftir lifði kvöldsins. Á mánudaginn komu svo Rósa og Davíð í heimsókn um 2 leytið með blöðrur og köku sem þau höfðu sjálf bakað. Hún var mjög góð og rosalega sætt af þeim. Þau komu svo inn og síðar kom Ingunn í smá heimsókn. Síðan um hálf fjögur leitið kom fleiri í kaffi til okkar, Silla, Filli, Helgi Fannar og Pétur Snær, Kristinn, Elsba og Lilja, Auður, Bjarni, Ragna, Bjarni Haukur, Sigrún, Aron Daði og Ásta Karen, Ásta, Guðni og Eiríkur Bogi, Karlotta og Lalli. Þannig að það var heljarinnar fjör á þessum bænum:) Ég fékk svo fullt af afmælispökkum, 14 kt gulleyrnarlokka, gjafabréf í Kringluna, 2 body lotion, flottan bol, teiknaða mynd, blómvönd, bleika rós, tréplatta sem á stendur: “Að eignast vin tekur andartak, að vera vinur tekur alla ævi”. Svo á ég eftir að velja mér einhver föt frá Hrafnkeli í afmælisgjöf. Takk allir fyrir mig:)
Næstu helgi langar mig að kíkja norður þar sem Jóna er að útskrifast sem leikskólakennari og er búin að bjóða mér í veislu á laugardaginn. Á sunnudaginn er svo sjómannadagurinn og þá er altaf mikið fjör á Dalvík, þá á einnig að heiðra pabba minn í sjómannamessunni svo gaman væri að vera viðstaddur það. Við eigum samt eftir að sjá til þar sem Hrafnkell fer austur á sunnudaginn og við ætlum að hitta vini okkar á föstudagskvöldið en allur þessi vinahópur hefur ekki hisst saman síðan fyrir mörgum árum þegar við bjuggum öll á Akureyri. Okkar hlakkar mikið til:) Síðan er einnig fyrirhugað staffadjamm hjá A vaktinni í vinnunni minni. Þar verður grillmatur, MIKIÐ áfengi, söngur, gítar, tjörn og skógur. Hvað þarf fleira til að skemmta sér?
Jæja hafið það öll sem best, kv, Íris
|