| Íris July 13, 2006 04:51 AM PDT Hæ Kristín Ég fór svo með Hrafnkel á laugardaginn að sjá sýninguna aftur. Honum leist líka bara vel á þetta allt saman. En já verðum endilega í bandi með verslunarmannahelgina. | ||
| Kristín Erla July 12, 2006 06:00 AM PDT Já við vorum greinilega með bestu hugmyndirnar þarna :) Já við Trausti erum immit líka bæði í frí og langar að gera eitthvað skemmtilegt um verslunarmannahelgina .... en engar hugmyndir komnar . | ||
| Íris July 8, 2006 12:10 PM PDT Jóhanna Fiskidagurinn er mesti hátíðisdagur ársins á Dalvík og þangað koma mörg þúsund manns og borða fisk í boði fiskivinnslufyrirtækja á Dalvík. Allt er ókeypis s.s tjaldstæði, grillaður fiskur, drykkir, nammi, skemmtiatriði, íspinnar, kaffi, brauð, fiskborgarar, blöðrur og margt fleira. Þetta er alveg ógeðslega skemmtilegur dagur og verður engin svikinn af því að mæta. Jóhanna þú verður samt stödd í Gotlandi þennan dag en ef þú villt kynna þér þetta betur þá er slóðin http://fiskidagur.muna.is/ þú verður samt að mæta á næsta ári;) | ||
| Jóhanna July 7, 2006 03:50 PM PDT Hvað er fiskidagur? | ||
| Hrafnkell July 4, 2006 12:22 PM PDT Þetta ætti að verða skemmtileg helgi, farinn að hlakka mikið til að koma:-) | ||
| Leave a Comment: |