|
Jæja það er margt búið að gerast á þessum mánuði sem liðin er frá síðustu færslu.
Það helsta er auðvitað að á miðvikudaginn 2. ágúst var Hrafnkell 25 ára. Til hamingju ástin mín:)
Hrafnkell er búinn að koma, fara aftur, koma aftur, fara aftur og á flug suður á eftir. Ég er líka einu sinni búin að fara til hans og vera frá þriðjudegi fram á fimmtudag. Hrafnkell var nú samt að vinna þarna og ég fór bara með honum í vinnuna og hann kenndi mér að beita múrskeið rétt. Eina helgi þegar Hrafnkell kom til mín var ég á aukavöktum og sáumst við því ekki eins mikið og við hefðum viljað en samt alltaf gaman að fá hann heim. Hann kom mér algjörlega á óvart með því að mæta til mín með 7 rósir þar sem ég hélt að hann ætlaði til Akureyrar því ég væri að vinna.
Ég er búin að fara í leikhús og sjá Footloose. Ég, Ingunn, Ásta, Jóna, Rósa, Bogga og Eygló byrjuðum kvöldið á því að fara út að borða svo þurfti Eygló að fara en við hinar skelltum okkur í leikhús. Það var mjög gaman að fara svona stelpuferð og mæli ég alveg með annari fljótlega.
Ég, Ingunn og Ásta erum búnar að fara og sjá Pirates of the Carribbean: Dead Man´s Chest. Myndin er mjög góð og Johnny Depp flottur að vanda.
Aukadagarnir sem ég tók í vinnunni eru allir búnir og núna bíð ég bara spennt eftir að komast í frí og láta aðra vinna fyrir mig. Ég er í fríi í dag, laugardag og sunnudag en þarf að vinna frá 14-2 á mánudag og þriðjudag. Á miðvikudaginn er stefnan tekin á að keyra norður og þá hefst 12 daga sumarfríið mitt. Ég mun svo halda austur á Skriðuklaustur eftir fiskidaginn og mun vera þar síðustu vikuna hans Hrafnkels. Síðan keyrum við bara í bæinn og hann þarf ekkert að fara aftur. Úff hvað það verður ljúft.
Verslunarmannahelgin er víst komin og ætlum við bara að vera í Reykjavík og nágreni. Ég er með smá óvissuferð fyrir Hrafnkel um helgina þar sem hann átti afmæli í fyrradag og mun ég upplýsa það eftir helgina.
Annars er nú ekkert mikið fleira að frétta nema ég er komin með nýjan lit í hárið og nýja klippingu. Ingunn ákvað að gera mig meira töff og er ég mjög ánægð með árangurinn. Hrafnkell á eftir að sjá þetta en hann sér þetta á eftir þegar hann kemur.
Svo bara minna alla á fiskidaginn næstu helgi. http://www.fiskidagur.muna.is/
Allir eru velkomnir.
Góða ferð til allra Gotlandsfara sem fara í dag. Ég vona að þið skemmtið ykkur vel, ég hefði sko alveg viljað vera að fara með ykkur en einhverstaðar verður að spara.
Farið svo varlega í umferðinni og ég elska ykkur öll:)!
|