Entry: Er komin tími á blogg? Thursday, October 05, 2006



Jæja það er víst margt búið að gerast síðan ég ritaði hér síðast. Ætla nú samt ekki að fara út í það allt enda myndi engin nenna að lesa það. Þetta blogg verður bara í pungtaformi svo ég komi einhverju að.

  • Fórum á Kárahnjúka og sáum þessa RISA stíflu sem á ekki heima þarna.
  • Eyddum heilum degi á Egilsstöðum í 30° hita og höfðum það gott. Grilluðum svo með bretunum sem voru að vinna með Hrafnkeli. Alltaf fyndið að grilla með bretum því þeim finnst við kaupa svo mikinn mat;)
  • Kíktum í heimsókn til Stebba, Hildu og dætra í Mývatnssveit. Hrafnkell og Stebbi héldu tónleika á pallinum í sólinni.
  • Ég fór og hitti Ingu, Jónu og Ólöfu á kaffihúsi á Akureyri. Voða gaman að rifja upp gamla tíma með þeim.
  • Fórum í mat til Önnu og Palla. Gaman að sjá þau og takk aftur fyrir okkur.
  • Ég fór á ball á menningarnótt með Rósu, Björgu og Sigrúnu. Voða gaman og MJÖG langt síðan ég hafði farið á ball.
  • Fórum til Kristínar og Trausta. Þangað komu líka Edda Linn, Hrönn, Úlla og Pési. Voða gaman að hitta þau og það er komið að okkur að halda svona. Hvenær eru þið laus og þú líka Lísa?
  • Fórum heila helgi norður og unnum í sumarbústaðnum okkar:) Hann er orðin fokheldur og lítur vel út:) Við heimsóttum samt engan þessa helgi vorum bara í Skíðadalnum svo við biðjumst afsökunar á því að hafa ekki komið til ykkar!
  • Auðun og Gerda komu í heimsókn um daginn. Alltaf gaman að fá gesti og langt síðan við höfðum séð þau.
  • Egill og Ellý gistu hérna hjá okkur um síðustu helgi og voru í mat á laugardagskvöldið. Við buðum líka Hákoni og gátum kvatt hann því hann er fluttur til Englands.
  • Við fórum í mótmælagöngu með ca 10.000 öðrum. Mótmæltum þessum fáranlegu stíflum og virkjunum.
  • Ég, Sigrún og Birna heimsóttum Eydísi og Jódísi Höllu. Hún er algjör dúlla og enn og aftur Eydís til hamingju með hana.
  • Erum búin að fara í 4. ára afmæli hjá Aroni Daða og 2. ára afmæli hjá Ástu Karen. Þau eru bara krúttleg systkinin:)
  • Hrafnkell tók að sér eitt föstudagskvöld að vera dyravörður á Óliver og sá þá alveg nýja hlið á fullu fólki;)
  • Á sunnudaginn síðasta komu svo frænkur, systur og mákona mín til mín og við byrjuðum að undirbúa jólaföndrið.
  • Annars erum við bara búin að vera að vinna og vinna eins og brjálæðingar. Ég er búin að vera í 2 vikur á dagvakt og 2 vikur á næturvakt til skiptis í langan tíma og er orðin dáltið þreytt á að vera endalaust að snúa sólahringnum við. Þegar ég er að koma heim á nóttunni af kvöldvakt er það á svipuðum tíma og ég vakna til að fara á morgunvakt.
  • Við erum búin að ákveða brúðkaupsdaginn og hann verður 14. júlí. 2007 og erum við að vinna í að panta prest og annað slíkt, sá sem við vildum fá var ekki laus.
  • Við erum byrjuð í átaki og nú á að taka af sér öll aukakílóin sem hafa safnast upp á skömmum tíma. Ég er búin að vera í tvær vikur í átaki og er búin að missa 3,3 kg en nóg er eftir.
  • Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra nema Það eru 80 dagar til jóla og auðvitað er ég byrjuð að telja niður:) Er líka komin aðeins á leið með að versla jólagjafirnar er meira að segja búin að versla á ófædda afasystrabarnið mitt. Ásta þú verður bara að eiga fyrir jól!
    Hafið það gott,
    love Íris

  •    4 comments

    Hrafnkell
    October 18, 2006   05:19 PM PDT
     
    Sæl Helga. Jú ég ætti að geta það. Er reyndar ekki með númerið hjá Braga, en kannski Ásgeir sé með það...
    Helga Ólöf
    October 18, 2006   04:54 AM PDT
     
    HÆHÆ

    Var að velta því fyrir mér hvort að Hrafnkell gæti haft upp á Ásgeiri og Braga, upp á að láta þá vita af bekkjarblogginu?

    En annars kíki ég hingað reglulega til að fylgjast með ykkur.

    Kv. Helga Ólöf
    Íris
    October 10, 2006   10:39 AM PDT
     
    Hæ Rósa og takk fyrir að kíkja ennþá á síðuna. Það lítur út fyrir að þú sért sú eina eða að engin nenni að kvitta.humm
    Rósa
    October 6, 2006   03:44 PM PDT
     
    Hæhæ! Gaman að lesa bloggið þitt aftur :) Sjáumst hressar! Kv. Rósa

    Leave a Comment:

    Name


    Homepage (optional)


    Comments