Entry: Hæ hæ Thursday, October 19, 2006



Veturinn er sko aldeilis farinn að gera vart við sig og því ekki seinna vænna en að draga fram vettlinga, húffur, ullarsokka og þykka trefla. Ég get sko alveg sagt ykkur það af bitri reynslu að þunnir jakkar yfir stuttermaboli eru ekki að meika það Þessa dagana.

Utan við kuldann er nú bara fínt að frétta af okkur hjúunum. Við erum farin að huga að fluttningum en við erum að flytja af stúdentagörðunum upp í Breiðholt, nánar tiltekið í seljahverfið og leggst það bara mjög vel í okkur. Auðvitað eru svo allir velkomnir í heimsókn þegar við verðum flutt og búin að koma okkur aðeins fyrir. Erum mikið að spá í að mála áður en við flytjum inn og gera þetta svoltið huggulegt.
Það er alltaf nóg að gera í vinnunni hjá mér og erum við búnar að vera á útkalli við að undirbúa fluttning, flytja og ganga frá. Við vorum farnar að smíða veggi og ganga í störf iðnaðarmanna í restina og var þetta bara heljarinnar fjör. Það tókst svo að lokum að smíða búð, tæma eina búð og setja aðra upp á tveimur dögum. Það var mikil vinna og alveg ótrúlegt að þetta skyldi takast. einn veggur var smíðaður og strax var kominn málari að mála vegginn og stuttu síðar fólk að setja upp hillur og nokkrum mínútum síðar voru söluvörur komnar í hillurnar. Við erum nú samt búin að vera pínu áttavillt í þessari nýju verslun og vitum ekki hvar neitt er en það kemur líklega mjög fljótt;) Í fyrradag fór ég á fyrirlestur hjá Clarins á vegum vinnunnar og fékk ásamt starfsfélögum smá fræðslu um nýju jólalínuna sem er rosalega flott og elegant. Einnig fengum við fræðslu um nýju kremlínuna og fengum svo flottar gjafir til að fara með heim og prófa:)
Í gærkveldi fór ég í veislu hjá Kanebo snyrtivörunum (einnig vegna vinnunnar) Þetta var allt rosalega flott. Höfðum fengið voða formlegt boðskort sem innihélt þær upplýsingar að þema kvöldsins væri rauður. Þegar við komum á staðinn beið okkar rauður dregill með friðarljósum og leiddi okkur inn. Þegar inn var komið fengum við rauðan fordrykk og gefins rauðan varalit sem við áttum að setja upp. Síðan var smá kynning á nýju Kanebo vörunum sem eru alveg geggjaðar;) Síðan var sest til borðs þar sem forréttur var reiddur fram, það var graflax og sósa, risarækjur, kjúklingaspjót, paté, brauð og hvítlaukssósa. Með þessu fengum við síðan rauðvín og hvítvín eftir því sem hver vildi. Aðalrétturinn kom síðan á borð og það var kjúklingapastaréttur með ostasósu og sveppum. Með því var borið fram hvítlauksbrauð og salat. Þjónarnir héldu áfram að hella rauðvíni og hvítvíni í glösin yfir aðalréttinum. Eftir þetta fengum við kaffi og konfekt og síðan koníak og baileys. Þegar þarna kom við sögu mætti Auddi Blöndal á svæðið og skemmti. Hann var mjög fyndinn og hef ég ekki séð sumar konurnar í vinnunni hlægja svona mikið, sumar áttu sko erfitt með sig;) Eftir að við hrisstum hláturstaugarnar var komin tími á að hrissta rassinn smá og skellt var upp diskóteki og nóg var af bjórnum. Þegar við fórum svo heim fengum við svo voða flotta gjöf frá þeim sem innihélt nýju línuna þeirra:) Þetta var alveg frábært kvöld og allt rosa flott. Vel skreytt húsnæðið með kertum, jólaseríum og rauðum rósum og held ég að allir hafi skemmt sér rosalega vel.
Ég er ennþá í átaki ásamt verðandi eiginmanni mínum. Þetta gengur bara rosalega vel hjá okkur og eiginlega alveg ótrúlegt að við séum búin að vera í átaki í 4 vikur. Finnst svo stutt síðan ég byrjaði en á þessum 4 vikum er ég búin að léttast um 5,5 kg og er sko aldeilis farin að finna fyrir því á fötunum mínum.
Síðasta laugardag vorum við Hrafnkell barnapíur. Lilja Kristinsdóttir (2 ára) var hjá okkur frá laugardagsmorni til sunnudagsmorguns og allt gekk rosalega vel enda er hún alltaf svo góð stelpa:)
Pétur Snær minnsti frændi minn fór svo í aðgerð í gær og gekk hún rosalega vel. Hann var fljótur að jafna sig og vonandi er þetta eyrnavesen búið hjá honum. Hann er bara 9 mánaða og hljóðhimnan hefur sprungið 7 sinnum í vinstra eyranu hans. Litla greyið fékk því rör í eyrun í gær. Pétur Snær er svo rosalega glaðvært barn að annað eins þekkist varla. Hann er alltaf brosandi eða hlægjandi og þrátt fyrir allt eyrnavesenið. Hann er voðalega duglegur, labbar meðfram öllu eða með sparkbílinn sinn á undan sér. Hann talar nokkur orð og er bara indislegastur. Ég tileinka honum þetta blogg því hann var svo duglegur í aðgerðinni sinni.

   1 comments

bára
January 6, 2008   10:57 AM PST
 
talaru íslensku

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments