Íris og Hrafnkell
    <description>Íris og Hrafnkell</description>
Hæ hæ
      <description>Veturinn er sko aldeilis farinn að gera vart við sig og því ekki seinna vænna en að draga fram vettlinga, húffur, ullarsokka og þykka trefla. Ég get sko alveg sagt ykkur það af bitri reynslu að þunnir jakkar yfir stuttermaboli eru ekki að meika það Þessa dagana. 
Utan við kuldann er nú bara fínt að frétta af okkur hjúunum. Við erum farin að huga að fluttningum en við erum að flytja af stúdentagörðunum upp í Breiðholt, nánar tiltekið í seljahverfið og leggst það bara mjög vel í okkur. Auðvitað eru svo allir velkomnir í heimsókn þegar við verðum flutt og búin að koma okkur aðeins fyrir. Erum... (more)</description>
Er komin tími á blogg?
      <description>Jæja það er víst margt búið að gerast síðan ég ritaði hér síðast. Ætla nú samt ekki að fara út í það allt enda myndi engin nenna að lesa það. Þetta blogg verður bara í pungtaformi svo ég komi einhverju að.
Fórum á Kárahnjúka og sáum þessa RISA stíflu sem á ekki heima þarna.
Eyddum heilum degi á Egilsstöðum í 30° hita og höfðum það gott. Grilluðum svo með bretunum sem voru að vinna með Hrafnkeli. Alltaf fyndið að grilla með bretum því þeim finnst við kaupa svo mikinn mat;)
Kíktum í heimsókn til Stebba, Hildu og dætra í Mývatnssveit. Hrafnkell og Stebbi héldu tónleika á pallinum í... (more)</description>
Flakk um landið.
      <description>Góðan og blessaðan daginn. 
Í dag berast fréttir af okkur frá austurlandinu en þar erum við einmitt stödd þessa stundina. Hrafnkell er að vinna og ég er inni á Skriðuklaustri að vinna í ritgerðinni minni (já eða blogga;) Við komum hingað keyrandi í nótt eftir skemmtilega helgi á Dalvík. Eins og flestir vita var Fiskidagurinn mikli haldin hátíðlegur á Dalvík í sjötta sinn. Talið er að um 35000 manns hafi mætt á svæðið og bragðað á ljúfengum mat. Bærinn var rosalega flottur og blöðrur, jólaljós og fánar settu mikinn svip á bæinn og eiga bæjarbúar heiður skilið eins og sjálfur forsetinn... (more)</description>
Komið þið sæl!
      <description>Jæja það er margt búið að gerast á þessum mánuði sem liðin er frá síðustu færslu.
Það helsta er auðvitað að á miðvikudaginn 2. ágúst var Hrafnkell 25 ára. Til hamingju ástin mín:)
Hrafnkell er búinn að koma, fara aftur, koma aftur, fara aftur og á flug suður á eftir. Ég er líka einu sinni búin að fara til hans og vera frá þriðjudegi fram á fimmtudag. Hrafnkell var nú samt að vinna þarna og ég fór bara með honum í vinnuna og hann kenndi mér að beita múrskeið rétt. Eina helgi þegar Hrafnkell kom til mín var ég á aukavöktum og sáumst við því ekki eins mikið og við hefðum viljað en samt... (more)</description>
Halló allir
      <description>Langt síðan ég hef látið í mér heyra og hef svo sem enga sérstaka afsökun fyrir því, bara bloggleti í gangi en nú verður bætt úr því:)
 Helgina 23-25 júní héldum við Rósa keyrandi norður, komum við í Kb banka í Borgarnesi og heilsuðum upp á Eggert en annars var lítið um stopp. Hrafnkell kom þann dag keyrandi að austan til Akureyrar og hittumst við þar og vá hvað það var gaman að sjá hann aftur eftir tveggja vikna aðskilnað. Helgin leið samt allt of hratt og þá þurftum við víst að halda í sitt hvora áttina:( Við náðum samt að afreka það, þessa helgi að vesla okkur eitt stykki fartölvu sem... (more)</description>
Einmannaleiki, veikindi og tölvuleysi hrjá mig þessa dagana.
      <description>Hæ hæ
Núna er rúm vika síðan Hrafnkell fór austur og er búinn að klára tímann sinn á Vopnafirði. Þau fundu alveg helling og honum fannst mjög gaman þar utan við að þar er ekkert gsm símasamband. Verð kannski að taka það fram að hann var aðeins fyrir utan Vopnafjörð en samt, alveg út í hött! Þau fengu samt einhvern NMT síma svo ég gat alltaf hringt í þann síma. Hrafnkell spilaði svo á tónleikum á föstudagskvöldið á akureyri og hélt á Skriðuklaustur á laugardaginn. Fyrsti dagurinn hans þar er í dag. Hrafnkell verður víst bara að vinna með kvennfólki í sumar þar sem allir Íslendingarnir og... (more)</description>
Heimsendir, svefnherbergi, afmæli og vinna
      <description>Í dag er 06.06.06. Flott dagsetning og þá kannski helst fyirir djöfladýrkendur;) Annars heyrði ég nú af því að heimsendir ætti að verða í dag. Ég hef nú ekki orðið vör við hann en dagurinn alls ekki búinn. 
Núna er búið að breyta vöktunum mínum í vinnunni og mæti ég alltaf klukkan 05:00 á morgnanna og vinn til 17:30. Ég er því að vakna um 3 á morgnanna þar sem ég þarf að ná í eina stelpu í Laugardalinn og hitta svo tvær í Hafnarfirði og koma okkur í bílana.
Nýjustu fréttir eru annars þær að ég er orðin 24. ára:) Ég átti afmæli í fyrradag, hvítasunnudag. Takk allir sem munduð eftir mér,... (more)</description>
Hey
      <description>Lífið á vellinum verður alltaf athyglisverðara með hverjum deginum sem líður. Það hefur ekki ennþá liðið sá dagur í vinnunni að ég hafi ekki allavegana þekkt eða kannast við einn farþega. Í gær fengum við smá kynningu á Clarins snyrtivörum og fengum svo smá prufur til að fara með heim og prófa. Í júní verða kynningar í hverrri viku frá einhverri heildsölu. Síðan þann 20. júní fer ég á námskeið hjá Dior, það er frönsk kona sem kemur til Íslands og heldur námskeið fyrir okkur og síðan fáum við frían kvöldmat á Hótel Keflavík á eftir. Það námskeið er mun lengra en hin, en stendur frá 13:30-18:00... (more)</description>
Vá annað blogg í dag:)
      <description>Ég er búin að fara og kjósa utankjörstaðar. Ég er víst ennþá með lögheimili á Dalvík svo ég varð að kjósa þar. Mér finnst alltaf gaman að fara og kjósa, það er viss stemming í því. Var samt að pæla áðan að það væri hægt að gera mjög skemmtilega þjóðfræði rannsókn á fólki á kjörstað og á kjördag. Sumt fólk, þá aðalega eldra fólk klæðir sig í sitt fínasta púss áður en það heldur á kjörstað. Áður fyrr hefur þetta öruglega verið skemmtileg bæjarferð fyrir fólk í sveitum, að skella sér í bæinn, hitta þar fólk og spjalla um sveitarstjórnarmál. Ég veit það mjög vel að það á alls ekki að hafa áróður... (more)</description>
Ég lofaði Birnu að blogga oftar:)
      <description>Í síðustu viku fór ég í fyrsta skipti í hæstarétt og hlustaði á lögfræðinga bera fram mál sín. Það var s.s verið að taka málið okkar fyrir. Núna er einnig komin úrskurður og að sjálfsögðu unnum við (3 skiptið sem við vinnum, tvisvar fyrir héraðsdómi og núna fyrir hæstarétti). Vonandi er þessu leiðindamáli bara lokið núna, það hefur staðið yfir í 3 ár og alltof mikil orka farið í mál sem er bara rugl út í gegn. Það var nú samt frekar undarleg tilfinning að fá stefnu í hendurnar fyrir 3 árum og að sama skapi frekar skrítið að heyra nafnið sitt nefnt í hæstarétti. Ég get samt ekki logið því að... (more)</description>